Menntaskólinn á Ísafirði hlaut nýverið styrk úr Sprotasjóði fyrir þróunarverkefni sem miðar að því að efla gæði kennslu og námsmats. Styrkurinn var afhentur við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu síðastliðinn laugardag, þar sem Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Bragi Þór Svavarsson, formaður stjórnar sjóðsins, afhentu styrkina. Fyrir hönd skólans tók Sólrún Geirsdóttir við styrknum.
Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla úthlutaði að þessu sinni alls 64.370.000 kr. til 20 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2026–2027. Sjóðurinn styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá skólastiga, en umsýsla hans er á vegum Rannís. Að þessu sinni bárust 39 umsóknir þar sem sótt var um rúmlega 146 milljónir króna.
Verkefni Menntaskólans á Ísafirði er metnaðarfullt þróunarverkefni sem leggur áherslu á að efla virkni, valdeflingu, sjálfstæði og gagnrýna hugsun nemenda. Byggt er á grunni leiðsagnarnáms og verður unnið með hugmyndafræði hönnunarhugsunar (e. Design Thinking), þar sem kennarar starfa saman í lærdómssamfélagi að þróun, prófun og innleiðingu nýrra kennsluaðferða og námsmats.
Markmið verkefnisins er að þróa lausnir sem nýtast bæði í dagskóla og fjarnámi, með sérstakri áherslu á heilindi, ábyrgð og helgun í námi. Jafnframt er horft til breytts tækniumhverfis með tilkomu gervigreindar og hvernig nýta megi hana á ábyrgan og uppbyggilegan hátt í skólastarfi.
Styrkurinn er mikilvæg viðurkenning á því þróunarstarfi sem unnið er við skólann og mun styðja við áframhaldandi umbætur á kennsluháttum og námsmati til hagsbóta fyrir nemendur og skólasamfélagið í heild.
Hér má sjá þau verkefni sem fengu úthlutaða styrki árið 2026.
| Styrkþegi | Heiti verkefnis | Úthlutaður styrkur |
| Kópavogsbær | Gervigreind – Uppspretta nýrra tækifæra? | 6.550.000 kr. |
| Menntaskólinn á Ísafirði | Hönnunarhugsun í þróun kennsluhátta og námsmats | 6.250.000 kr. |
| Mosfellsbær, allir leikskólar | Samskiptasáttmáli Mosfellsbæjar | 5.000.000 kr. |
| Listasafn Íslands | Þar sem sögur mætast | 4.460.000 kr. |
| Hagaskóli | Íslenska í daglegu lífi ungmenna | 4.200.000 kr. |
| Kópavogsbær, menntasvið | Lausnahringurinn í leikskólum Kópavogs | 4.000.000 kr. |
| Foldaskóli | Skólastofa samtímans | 4.000.000 kr. |
| Sveitarfélagið Árborg, leikskólinn Jötunheimar | Mál skiptir máli | 3.500.000 kr. |
| Neyðarlínan ohf. | Stærri og sterkari Sexa | 3.410.000 kr. |
| Lundasel - Pálmholt | Að undrast - Samræður í leikskólastarfi | 3.360.000 kr. |
| Borgarhólsskóli | Lítil skref á leið til læsis | 3.200.000 kr. |
| Reykjavíkurborg, leikskólinn Rauðhóll | Skógarhópurinn - Rannsókn í þágu lýðheilsu barna | 3.000.000 kr. |
| Borgarbyggð, leikskólinn Klettaborg | STEAM og leiðsagnarmat- Þróun námsmenningar | 2.660.000 kr. |
| Akureyrarbær, Glerárskóli | Fjársjóðskort og fjölbreyttar kennsluaðferðir | 2.500.000 kr. |
| Vogaskóli | Raddir ungmenna, lýðræði, tölfræði og textalæsi | 2.000.000 kr. |
| Akureyrarbær, Iðavöllur | Fjárfestum í framtíðinni – jöfn tækifæri til náms | 2.000.000 kr. |
| Selásskóli | Leikur á viku hreyfing, samvinna og lýðræði í leik | 1.730.000 kr. |
| Alice Demurtas | Kveikt - QFT í Kennslustofunni | 1.200.000 kr. |
| Vogaskóli | Undirbúningur milli skólastiga | 800.000 kr. |
| Reykjavíkurborg, Hvassaleitisskóli | Læsi fyrir lífið | 550.000 kr. |