Menntaskólinn á Ísafirði var settur í 57. sinn í dag og einkenndist fyrsti skóladagurinn af eftirvæntingu og gleði. Alls eru um 600 nemendur skráðir í nám við skólann á þessu skólaári.
Mikil fjölgun hefur orðið á dagskólanemendum frá síðasta skólaári og eru þeir nú 248 talsins. Þar af stunda sex nemendur nám í nýstofnaðri framhaldsdeild MÍ á Patreksfirði. Með starfsemi deildarinnar er stigið mikilvægt skref í átt að því að tryggja áframhaldandi aðgengi að framhaldsnámi á sunnanverðum Vestfjörðum.
Nýnemar eru alls 78 á þessu skólaári og hafa ekki verið fleiri um langt skeið. Heimavist skólans er jafnframt þéttsetin en þar munu 42 nemendur dvelja í vetur. Ekki hafa verið fleiri vistarbúar á heimavistinni síðan á síðustu öld. Sérstaklega ánægjulegt er að sjá fjölgun nemenda frá Vesturbyggð, en 17 nemendur þaðan munu búa á heimavistinni í vetur.
Í fyrsta sinn í sögu skólans hefja nemendur nú nám í leikskólaliðanámi og stuðningsfulltrúanámi. Alls eru 25 nemendur skráðir í námið og sýnir góð aðsókn glögglega að þörf er fyrir aukna menntun og fjölgun fagfólks á þessum mikilvægu sviðum.
Áfram er mikil aðsókn í starfs- og verknám og hefur áhugi á þessum námsleiðum farið jafnt og þétt vaxandi undanfarin ár. Núverandi verknámshúsnæði er fullnýtt og rúmlega það, enda hefur fjölgun nemenda og aukið framboð námsleiða kallað á meiri og betri aðstöðu.
Nauðsyn nýs verknámshúss hefur því aldrei verið meiri. Ákvörðun um byggingu þess hefur þegar verið tekin og nú er mikilvægt að framkvæmdir hefjist sem fyrst. Nýtt húsnæði er lykilforsenda þess að Menntaskólinn á Ísafirði geti áfram mætt vaxandi eftirspurn eftir starfs- og verknámi, þróað námið enn frekar og tryggt nemendum og starfsfólki nútímalega og örugga aðstöðu.
Fjölgun nemenda, aukið námsframboð og góð aðsókn á fjölbreyttar námsleiðir bera vott um öflugt og metnaðarfullt skólastarf. Það er því með mikilli eftirvæntingu sem Menntaskólinn á Ísafirði hefur nú hafið sitt 57. starfsár.