MÍ hlýtur styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála

Frá úthlutun styrksins
Frá úthlutun styrksins

Á miðvikudaginn fór fram úthlutun úr Þróunarsjóði innflytjendamála og hlaut MÍ þar styrk upp á 2,7 milljónir króna fyrir verkefnið Gefum íslensku séns í MÍ. Alls var 70 milljónum úthlutað til 28 verkefna en úthlutunin fór fram á viðburðinum Innflytjendur og samfélagið, sem haldinn var í tilefni af alþjóðlega mannréttindadeginum.

Verkefnið miðar að því að styrkja íslenskukunnáttu, félagsfærni og þátttöku nemenda með erlendan bakgrunn með samtölum, vettvangsferðum og fjölbreyttum viðburðum. Styrkurinn gerir skólanum kleift að þróa verkefnið enn frekar og skapa jákvætt og hvetjandi umhverfi fyrir íslenskunám í skólasamfélaginu og nærsamfélaginu.