Menntaskólinn á Ísafirði hlaut í gær viðurkenningu í könnun Sameykis um Stofnun ársins. Skólinn varð í 3. sæti í flokki meðalstórra stofnana (40-89 starfsmenn) árið 2025. Skólinn hlýtur þar með sæmdarheitið fyrirmyndarstofnun. Skólinn hefur nú hlotið viðurkenningu í Stofnun ársins í fjögur ár í röð.
Skólinn fagnar þessu góða gengi í könnuninni en um leið verður áfram verður unnið áfram að því að byggja upp gott vinnuumhverfi innan skólans með fagmennsku og samvinnu að leiðarljósi. Saman viljum við gera góðan skóla enn betri.
Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Reykjavíkurborgar. Á hverju ári tekur allt starfsfólk skólans, óháð félagsaðild, þátt í könnuninni. Mælingin nær yfir níu ólíka þætti og þannig fæst heilsteypt mynd af innra starfsumhverfi stofnana. Tilgangur með vali á stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri í mannauðsstjórnun. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að umbótum í stjórnun og starfsumhverfi og á að efla starfsumhverfi félagsfólks og starfsfólks í almannaþjónustu. Niðurstöður könnunarinnar veita afar mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar stofnanir.
Hér má sjá niðurstöður allra stofnana sem tóku þátt í könnuninni.

