Menntaskólinn á Ísafirði hefur hafið samstarf við Afrekmanneskjuna, fyrirtæki Ólafs Stefánssonar, með það að markmiði að styðja betur við nemendur á íþróttasviði skólans og draga úr brotthvarfi úr íþróttum meðal ungmenna.
Með samstarfinu vill skólinn efla þá þætti sem hjálpa ungu fólki að halda áfram að stunda íþróttir og hreyfingu til lengri tíma, enda er regluleg hreyfing mikilvægur þáttur í líkamlegri og andlegri heilsu. Jafnframt verður lögð áhersla á að styrkja nemendur í að takast á við þær áskoranir sem fylgja bæði námi og íþróttaiðkun.
Íþróttir eru miklu meira en keppni og árangur. Þær kenna ungmennum að takast á við mótlæti, læra af mistökum og halda áfram þrátt fyrir áföll og vonbrigði. Í íþróttum læra þau einnig ábyrgð, þar sem eigin undirbúningur, ákvarðanir og hegðun hafa áhrif bæði á einstaklinginn sjálfan og samferðafólk hans. Jafnframt skapa íþróttir mikilvægan vettvang fyrir samskipti og tengslamyndun. Þar læra ungmenni að vinna með öðrum, sýna tillitsemi, bera traust til samherja og leggja sitt af mörkum til hópsins. Þau fá einnig tækifæri til að æfa sig í að takast á við tilfinningar, álag og pressu á uppbyggilegan hátt. Markmiðið með samstarfi MÍ og Areksmanneskjunnar er að efla nemendur þannig að íþróttirnar verði vettvangur fyrir persónulegan þroska og jákvæða lífsreynslu samhliða námi.
Með þessu nýja samstarfi stígur Menntaskólinn á Ísafirði mikilvægt skref í að styrkja enn frekar umgjörð um íþróttanemendur og skapa aðstæður sem hvetja ungt fólk til áframhaldandi þátttöku í íþróttum og hreyfingu.