Í síðustu viku fóru fram MÍ-leikarnir í fyrsta sinn og markar vonandi nýja hefð innan skólans.
Nemendur spreyttu sig á fjölbreyttum þrautum víðs vegar um skólann sem kennarar höfðu skipulagt af miklum metnaði. Stemningin jókst enn frekar þegar liðin mættu með eigin fána og þema í klæðnaði sem þau höfðu sjálf hannað.
Mikil samkeppni ríkti milli liða, en jafnframt var augljóst að gleði og samheldni skiptu mestu máli. Að sögn skipuleggjenda er hugmyndin að gera leikana að árlegum viðburði sem styrki skólasamfélagið og efli félagsanda.
MÍ-leikarnir eru haldnir að fyrirmynd Flóafárs sem hefur verið árlegur viðburður í Fjölbrautarskóla Suðurlands og notið mikilla vinsælda þar.
Hér má sjá myndir af keppninni.