MÍ - listafinale í Safnahúsinu á Ísafirði

Nemendur á Lista- og nýsköpunarbraut halda sýningu á verkum sínum úr áfanga um fjarvídd og formfræði. Á sýningunni kynna fjórir nemendur lokaverk sín sem unnin voru út frá námi vetrarins á skapandi og sjálfstæðan hátt. Í áfanganum er lögð áhersla á teikningu, formfræði og fjarvídd, þar sem nemendur hafa þróað eigin myndræna nálgun og unnið með ólíkar útfærslur og hugmyndir. Nemendurnir sem sýna að þessu sinni eru Aldís Lind Haraldsdóttir, Irma Karítas Ralfsdóttir Trylla, Soffía Rún Ívarsdóttir, Vigdís Eva Leifsdóttir Blöndal og bjóða þær alla hjartanlega velkomna á sýninguna. 

Sýningin er sett upp í fjölnota rými í kjallara Safnahúss Ísafjarðar og ber yfirskriftina MÍ - listafinale. Opnun sýningarinnar verður miðvikudaginn 13. maí kl. 12:00-13:30. Í kjölfarið verða nemendur með yfirsetu á sýningunni á eftirfarandi tímum:

15. maí – 16-18

16. maí – 14-16

18. maí – 16-18

19. maí – 16-18