Íslensku menntaverðlaunin eru veitt árlega og voru tilnefningar í ár birtar á alþjóðlegum degi kennara. Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum fyrir framúrskarandi skólastarf, kennslu, þróunarverkefni og iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.
Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbótastarfs. Menntaskólinn á Ísafirði er tilnefndur fyrir Tímatökuhúsið – verkefni sem sýnir hvernig iðnmenntun getur tengst samfélaginu á uppbyggilegan hátt – en þetta verkefni fólst í hönnun og smíði tímatökuhúss fyrir skíðafélagið sem síðar var flutt upp á skíðasvæðið í Tungudal til notkunar við tímatöku í alpagreinum.
Verkefnið sem Hermann Björn Þorsteinsson og Þórhallur Snædal húsasmíðakennarar leiddu hófst haustið 2024 og lauk vorið 2026 og var samþætt lykiláföngum námsins. Markmið verkefnisins var að skapa raunverulegt námsumhverfi þar sem nemendur gætu tekið þátt í heildstæðu byggingarverkefni frá hugmynd að fullbúnu mannvirki. Nemendur komu að öllum helstu þáttum framkvæmdarinnar og öðluðust þannig dýrmæta verklega reynslu samhliða bóklegu námi. Við óskum Hermanni, Þórhalli og nemendum þeirra innilega til hamingju með tilnefninguna um leið og við færum Skíðafélagi Ísfirðinga kærar þakkir fyrir skemmtilegt samstarf.
Verðlaunin verða veitt á Bessastöðum þriðjudaginn 10. nóvember en nánar má lesa um þau hér.