Sköpunargleði, samvinna og keppnisandi einkenndu MÍ-leikana sem fóru fram í Menntaskólanum á Ísafirði dagana 8. og 9. september. Þetta er í annað sinn sem leikarnir eru haldnir, en fyrirmynd þeirra er Flóafjör í Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Á þriðjudeginum fór fram undirbúningur þar sem nemendur unnu í liðum undir stjórn skipaðra hópstjóra og aðstoðarhópstjóra. Liðin völdu sér nöfn og hönnuðu fána og búninga af miklum metnaði. Þar fékk hugmyndaflugið að njóta sín og liðin lögðu sig fram við að skapa sinn eigin svip fyrir keppnina.
Leikarnir sjálfir fóru fram á miðvikudeginum. Þá tókust liðin á við fjölbreyttar þrautir sem kennarar og starfsfólk skólans höfðu hannað. Mikil stemning myndaðist þegar nemendur kepptust við að leysa sem flestar þrautir og safna stigum. Í lok keppninnar gafst liðunum svo tækifæri til að bæta við sig aukastigum með lokaatriði og sigurópi.
Spennan var mikil allt til loka og aðeins tvö og hálft stig skildu að efstu tvö liðin. Bleiki pardusinn bar sigur úr býtum með 73,5 stig, Cowboys varð í öðru sæti með 71 stig og Rauðu djöflarnir í því þriðja með 64 stig.
Við þökkum nemendum og starfsfólki fyrir skemmtilega daga, metnaðarfullan undirbúning og frábæra þátttöku!
Úrslit MÍ-leikanna
| Sæti | Lið | Stig |
|---|---|---|
| 1. | Bleiki pardusinn | 73,5 |
| 2. | Cowboys | 71 |
| 3. | Rauðu djöflarnir | 64 |
| 4. | Sveitalubbarnir | 61,5 |
| 5. | Dýr(ir) menn | 61 |
| 6.–7. | Strumpaveldið | 55 |
| 6.–7. | Eyþór og prinsessurnar | 55 |
| 8. | Mjólkursamsalan | 53 |
| 9. | Ruslapokarnir | 49 |
| 10. | Strumparnir (Glimmer) | 47,5 |
| 11. | Svavars Mafía | 45,5 |
| 12. | Grétars Army | 41,5 |















