Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Gylfi Ólafsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, hafa undirritað viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Ísafjarðarbær tekur að sér undirbúning og framkvæmdir og næsta skref er áætlanagerð og hönnun viðbyggingarinnar.
Löngu er orðin þörf á að nýtt verknámshús rísi á Ísafirði. Kennsla í háriðngreinum og húsasmíði fer nú fram í kjallara undir heimavist skólans, þar sem aðstaðan mætir ekki kröfum nútímans. Nýtt húsnæði mun bæta námsaðstöðu og skapa tækifæri til fjölbreyttara verk- og starfsnáms á Vestfjörðum.
Heiðrún, skólameistari MÍ, var viðstödd undirritunina og fagnar áfanganum:
„Við hjá MÍ fögnum þessu mikilvæga skrefi og vonum að viljayfirlýsingin verði til þess að nýtt verknámshús rísi sem allra fyrst. Þörfin er mikil og við viljum að nemendur okkar geti sótt nám hér við góðar og samkeppnishæfar aðstæður.“