Grunndeild rafiðna fór í heimsókn, ásamt Elvari Ara Stefánssyni kennara, í Fossárvirkjun miðvikudaginn 3. september. Heimsóknin tókst afar vel og fengu nemendur fróðlega kynningu frá Birgi Erni hjá Orkubúi Vestfjarða. Hann fór yfir helstu atriði sem tengjast virkjanarekstri og raforkuframleiðslu hjá Orkubúinu.
Ferðin var liður í áfanga þar sem nemendur kynnast grunnþáttum raforkuframleiðslu og dreifingu raforku og gaf heimsóknin þeim tækifæri til að sjá fræðin í framkvæmd.