Hópur nemenda af B-stigi í vélstjórnun við Menntaskólann á Ísafirði fékk nýverið tækifæri til að heimsækja skemmtiferðaskipið Emerald Princess. Tilgangur ferðarinnar var að kynna nemendum aðstæður í vélarúmi og þann fjölbreytta búnað sem vélstjórar sinna um borð.
Á meðan á heimsókninni stóð var meðal annars skoðað vaktrúm vélstjóra og farið með nemendur um allt vélarúmið. Þar fengu þeir að kynnast meginstoðum skipsins, meðal annars gríðarstórum vélum sem framleiða rafmagn til að knýja skipið áfram í gegnum öfluga rafmótora. Nemendum þótti sérstaklega áhugavert að sjá hversu umfangsmikið vélakerfið er og hvernig hraði skipsins ræðst af því hversu margar vélar eru í gangi hverju sinni.
Heimsókninni lauk á notalegan hátt í matsal skipsins þar sem nemendum var boðið að njóta veglegs hádegisverðarhlaðborðs.


