Síðustu viku októbermánaðar fóru nemendur í áfanganum Tölvu og nettækni í fróðlega heimsókn til Snerpu, þar sem þau fengu innsýn í ýmsan búnað og þau netkerfi sem fyrirtækið sér um á Vestfjörðum.
Snerpa er öflugt og rótgróið fyrirtæki í heimabyggð og hefur unnið mikið og mikilvægt starf undanfarin ár, meðal annars við að leggja ljósleiðara víðsvegar um Vestfirði. Starf þeirra hefur haft veruleg áhrif á stafræna innviði svæðisins og eflt tengingar bæði heimila og fyrirtækja.
Heimsóknin reyndist afar gagnleg fyrir nemendur. Kynningin á kerfum, búnaði og daglegum rekstri fyrirtækisins mun nýtast vel í kennslunni, þar sem áfanginn fjallar meðal annars um virkni tölvukerfa og gagnaflutning. Nemendur fengu þannig tækifæri til að sjá í verki mörg þeirra hugtaka sem þau læra um í kennslustundum.

