Í þessari viku fóru fram kosningar í nýja stjórn Nemendafélags MÍ. Margir nemendur voru í framboði og kosningaþátttakan mjög góð. Nýja stjórn skipa Kristján Hrafn Kristjánsson formaður, Daníel Stefán J'ohannsson gjaldkeri, Rakel Eva Steinþórsdóttir ritari, Aðalbjörg Birna Haraldsdóttir menningarviti, Grétar Logi Sigurðsson málfinnur, Lovísa Matthildur Tumadóttir formaður leikfélags, Berglind Jenný Sveinsdóttir formaður vídeoráðs og Eyþór Freyr Árnason fulltrúi verknámsnema.
Við óskum nýrri stjórn velfarnaðar í störfum sínum um leið og við þökkum fráfarandi stjórn fyrir gott samstarf.