Nýjar námsbrautir í boði í MÍ

Frá og með hausti verður leikskólaliðanám og stuðningsfulltrúanám í boði í fjarnámi við Menntaskólann á Ísafirði.

LEIKSKÓLALIÐANÁM veitir þekkingu og færni til að starfa með börnum í námi og leik. Áhersla er lögð á uppeldisfræði, sálfræði, listsköpun og notkun leikja. Leikskólaliðar starfa við hlið annars fagfólks á leikskólum.

STUÐNINGSFULLTRÚANÁM styrkir fagvitund og áhersla er lögð á uppeldisfræði, fötlunarfræði, sálfræði, samskipti og listsköpun. Stuðningsfulltrúar starfa við hlið annars fagfólks að umönnun, uppeldi og menntun barna og ungmenna með sérþarfir.

UPPSETNING NÁMSINS:

  • Báðar brautir eru skipulagðar sem 5 anna nám
  • Námið er alls 120 einingar og lýkur með framhaldsskólaprófi

  • Miðað við að ljúka náminu á 5 önnum þarf að ljúka 20-25 einingum á önn.

  • Starfsþjálfun/vinnustaðanám er á síðustu tveimur önnunum

  • Námið er kennt í fjarnámi, í boði er aðstaða í MÍ fyrir námshittinga.

  • Hér má sjá brautaruppsetningu leikskólaliðanáms.
  • Hér má sjá brautaruppsetningu stuðningsfulltrúanáms.

 

RAUNFÆRNIMAT í boði hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða (www.frmst.is)

Raunfærnimat er leið til að meta þá færni, þekkingu og reynslu sem fólk hefur öðlast með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi á móti einingum á framhaldsskólastigi eða viðmiðum atvinnulífsins. Matið getur mögulega stytt nám og verið hvatning til að ljúka námi sem þegar var hafið.

Hvað er miðað við til að einstaklingur geti farið í raunfærnimat:

  • 23 ára aldur
  • 3 ára starfsreynsla
  • Fræðslusjóður greiðir fyrir þátttakendur sem hafa ekki lokið formlegri menntun.

 

Hvað geri ég ef ég vil fara í raunfærnimat í leikskólaliðnámi eða stuðningsfulltrúanámi?

  1. Hefur samband við Fræðslumiðstöð Vestfjarða upp á að komast í raunfærnimat.
  2. Sækir um námið í MÍ, setur í athugasemd að þú ætlir að fara í raunfærnimat

 

FREKARI UPPLÝSINGAR og INNRITUN

Frekari upplýsingar má fá með því að senda fyrirspurn á fjarnam@misa.is

Hægt er að sækja um námið núna á www.innritun.is, umsóknarfrestur er til 26. maí 2026