Nýnemadagur 2025

Nýnemar á nýnemadaginn
Nýnemar á nýnemadaginn

Nýnemadagur MÍ var í dag en 65 nýnemar hefja skólagöngu sína þetta haustið. Að auki eru 7 nýir eldri nemendur að hefja nám við skólann. Þessi dagur er ávallt skemmtilegur og mikil tilhlökkun er hjá starfsfólki MÍ að taka á móti nýjum nemendum og bjóða þau velkomin í skólann.

Á nýnemadeginum fá nýnemar kynningu á því helsta sem við kemur skólagöngu þeirra í skólanum og skólastarfinu í heild.

Við í MÍ erum ákaflega ánægð með þennan flotta hóp sem er að hefja skólagöngu sína hjá okkur og bjóðum þó hjartanlega velkomin í skólann.