Ólafur Stefánsson í heimsókn á íþróttasviði

Í dag fengu nemendur á íþróttasviði góðan gest í heimsókn en þar var á ferðinni Ólafur Stefánsson einn fremsti handboltamaður Íslandssögunnar. Ólafur er stofnandi Afreksmanneskjunnar og var með fræðslu í samstarfi við Ísafjarðarbæ. Í fræðslunni fjallaði hann um ýmsar áskoranir sem mæta unglingum í íþróttum og hvernig mætti takast á við þær.