Öryggisgjöf frá Sjótækni

Í dag fékk Menntaskólinn á Ísafirði heimsókn þegar Lísbet frá Slökkviliði Ísafjarðarbæjar, og Sif Huld frá Sjótækni, komu í skólann og afhentu nemendum sérstaka öryggisgjöf frá Sjótækni. Gjöfin er lítið og handhægt öryggistól sem hægt er að festa á lyklakippu, búið bæði klippum til að skera bílbelti og áhaldi sem brýtur bílrúðu ef slys verða.

Tilefni gjafarinnar er alvarlegt umferðaróhapp sem varð á Skutulsfjarðarbraut fyrr í haust og vakti umræðu um mikilvægi öryggisbúnaðar og réttrar viðbragðstækni í neyð.

Fjölmargir nemendur mættu á viðburðinn og voru greinilega áhugasamir um græjuna og notagildi hennar. Menntaskólinn á Ísafirði þakkar Slökkviliðinu kærlega fyrir fræðandi heimsókn og Sjótækni fyrir rausnarlega gjöf sem styrkir öryggisvitund nemenda.