Árlegt Sólrisuleikrit Menntaskólans á Ísafirði var frumsýnt síðastliðinn föstudag fyrir fullum sal. Að þessu sinni var ráðist í metnaðarfullt verkefni þegar ákveðið var að setja upp hið sígilda leikrit Rómeó og Júlía eftir William Shakespeare, en þar var sannarlega ekki ráðist á garðinn þar sem hann var lægstur.
Sýningin heppnaðist afar vel og ljóst að mikil vinna og metnaður lá að baki uppfærslunni. Allir leikarar eiga hrós skilið fyrir frábæran leik og sterka nærveru á sviði, þar sem tilfinningar og dramatík verksins skiluðu sér vel til áhorfenda. Rafmagn fór af húsinu stuttu eftir að sýningin byrjaði aftur eftir hlé. Stöðva þurfti því sýninguna um stund vegna tæknilegra vandamála sem komu upp eftir að rafmagnið kom aftur á. Það kom þó ekki að sök og ekki að sjá að þessi óvænta uppákoma hefði einhver áhrif á leikarana.
Það ber að hrósa leikstjóranum, Birgittu Birgisdóttur, sem náði að draga fram það besta í leikurum og skapa heildstætt og áhrifamikið verk. Uppsetningin var bæði fagleg og vel útfærð og sýnir glöggt þann kraft og hæfileika sem býr í nemendum skólans.
Frumsýningin lofar góðu fyrir komandi sýningar og er óhætt að hvetja alla til að láta þessa metnaðarfullu uppfærslu ekki fram hjá sér fara.
