Samstarf um rekstur framhaldsskóladeildar í Vesturbyggð

Nú fyrir helgi var staðfest að rekstur framhaldsdeildar á Patreksfirði verður tryggður frá og með haustinu 2026 í samstarfi Vesturbyggðar og Menntaskólans á Ísafirði. Um er að ræða mikilvægt skref í uppbyggingu framhaldsnáms á sunnanverðum Vestfjörðum og fögnum við í MÍ því samstarfi og þeim tækifærum sem það skapar.

Námið í Vesturbyggð verður skipulagt sem blanda af staðnámi og fjarnámi. Nemendur fá aðstöðu og stuðning á Patreksfirði samhliða kennslu og þjónustu frá Menntaskólanum á Ísafirði. Markmiðið er að efla möguleika ungmenna á sunnanverðum Vestfjörðum til að stunda framhaldsskólanám í heimabyggð með því að skapa öflugt námsumhverfi með góðu utanumhaldi og sterkri tengingu við skólasamfélag MÍ.

Áhugasamir geta sótt um nám til 16. ágúst. Þeir sem vilja kynna sér námið nánar eða óska eftir frekari upplýsingum eru hvattir til að hafa samband við Heiðrúnu Tryggvadóttur, skólameistara Menntaskólans á Ísafirði, í netfangið heidrun@misa.is eða í síma 450 4400 eða 849 8815.