Árið 2026 er nú hafið og vorönn Menntaskólans á Ísafirði er að fara af stað eftir jólafrí.
Heimavist skólans opnaði aftur sunnudaginn 4. janúar og í dag, mánudaginn 5. janúar, opnaði skrifstofa skólans á ný. Nemendur geta nú nálgast stundatöflur sínar á INNU og undirbúið sig fyrir upphaf annarinnar.
Vorönn skólans verður sett formlega þriðjudaginn 6. janúar. Nemendur mæta í Gryfjuna klukkan 11:30 þar sem setning fer fram. Kennsla hefst í kjölfarið samkvæmt stundatöflu klukkan 11:50.
Skólastjórnendur minna jafnframt á mikilvægar dagsetningar í janúar sem nemendur þurfa að hafa í huga:
Nemendur eru hvattir til að kynna sér þessar dagsetningar vel og tryggja að allar skráningar og breytingar séu gerðar innan tilskilinna tímamarka.