Skólafundur haustannar Menntaskólans á Ísafirði fór fram í dag í Gryfjunni, þar sem þema fundarins var spurningin „Skiptir menntun máli?“
Fundurinn hófst á stuttu myndbandi þar sem nokkrir útskrifaðir MÍ-nemendur sögðu frá reynslu sinni eftir útskrift. Þar ræddu þau meðal annars hvað þau hefðu viljað gera öðruvísi ef þau hefðu vitað það sem þau vita í dag, hvað hefði undirbúið þau best fyrir háskólanám og hvaða ráð þau vildu gefa núverandi nemendum skólans.
Í kjölfarið tóku við pallborðsumræður þar sem Gauti Geirsson, framkvæmdastjóri Háafells og fyrrum nemandi MÍ, Bríet María, núverandi nemandi MÍ og Grétar Örn, fyrrum nemandi MÍ og verkefnastjóri skólans, fjölluðu um hvað nám og menntun þýða fyrir þau. Þau svöruðu jafnframt spurningum úr sal og sköpuðust líflegar umræður.
Mæting á fundinn var mjög góð og var almenn ánægja með bæði innihald og umræður.

