Skólaslit og brautskráning 2017

Vélstjórar með A réttindi
Vélstjórar með A réttindi
Laugardaginn 27. maí s.l. var skólanum slitið við hátíðlega athöfn í Ísafjarðarkirkju, að viðstöddu fjölmenni. Alls voru brautskráðir 52 nemendur. Átta nemendur luku A-námi vélstjórnar og sjö nemendur luku B-námi. Einn sjúkraliði var brautskráður og fimm stálsmiðir. Þá voru brautskráðir 32 stúdentar. Þar af luku 10 nemendur stúdentsprófi af félagsfræðabraut og tveir af félagsvísindabraut. Einn lauk stúdentsprófi af opinni stúdentsprófsbraut og 16 af náttúrufræðibraut. Tveir nemendur luku viðbótarnámi til stúdentsprófs og einn nemandi lauk prófi af starfsbraut. Hæsta meðaleinkunn á stúdentsprófi hlaut Svanhildur Sævarsdóttir stúdent af félagsfræðabraut, með meðaleinkunn 9,49. Fast á hæla henni kom semi-dúxinn Dóróthea Magnúsdóttir stúdent af náttúrufræðibraut, með meðaleinkunn 9,40. Að vanda ávörpuðu fulltrúar afmælisárganga samkomuna og að þessu sinni var einnig flutt kveðja frá Bryndísi Schram, sem útskrifaði 40 ára stúdentana á sínum tíma, vorið 1977. Glæsilegur tónlistarflutningur nýstúdenta setti svip sinn á athöfnina og fjölmörg verðlaun voru veitt fyrir góðan námsárangur og ástundun. Gefendum verðlauna og viðurkenninga eru færðar kærar þakkir fyrir hlýhug í garð skólans. 

Sjúkraliði og vélstjórar með B réttindi

Stálsmiðir

Stúdentar

Jón Reynir Sigurvinsson skólameistari

Sigríður Elma Björnsdóttir flutti lagið Skyfall ásamt Jóni Hallfreð Engilbertssyni og Tuuli Rähni.

Emma Jóna Hermannsdóttir tekur við verðlaunum Ísfirðingafélagsins frá Guðmundi Jóhannssyni formanni sem fagnaði 30 ára stúdentsafmæli frá MÍ.

Svanhildur Sævarsdóttir, dúx skólans, flytur ávarp.

Aron Ottó Jóhannsson flytur Ol´ man river við undirleik Péturs Ernis Svavarssonar.

Anna Anika Jónína Guðmundsóttir flytur lagið Í dreamed a dream ásamt Aron Ottó Jóhannssyni og Hilmari Adam Jóhannssyni.

Aron Ottó Jóhannsson flytur lagið I dreamed a dream ásamt Önnu Aniku Jónínu Guðmundsdóttur og Hilmari Adam Jóhannssyni.

Hilmar Adam Jóhannsson flytur lagið I dreamed a dream ásamt Önnu Aniku Jónínu Guðmundsdóttur og Aroni Ottó Jóhannssyni.