Menntaskólinn á Ísafirði óskar Soffíu Rún Ívarsdóttur, nemanda á starfsbraut skólans, innilega til hamingju með glæsilegan árangur á Special Olympics Idrætsfestival í Roskilde í Danmörku sem fram fór um helgina.
Soffía keppti fyrir Íslands hönd í badminton og stóð sig með miklum sóma. Hún vann til gullverðlauna bæði í einstaklingskeppni og parakeppni og stóð því efst á verðlaunapallinum í báðum greinum.
Special Olympics Idrætsfestival er stærsta íþróttahátíð Danmerkur fyrir íþróttafólk með þroskahömlun og/eða námserfiðleika. Í ár tóku um 1.000–1.200 keppendur, þjálfarar og fararstjórar þátt og keppt var í 12 íþróttagreinum.
Árangur Soffíu er einstakur og endurspeglar metnað, seiglu og jákvætt viðhorf hennar bæði innan vallar sem utan. Menntaskólinn á Ísafirði er afar stoltur af þessum frábæra árangri og óskar Soffíu enn á ný innilega til hamingju með tvöfalt gull á alþjóðlegum vettvangi.