Sólarselluverkefni MÍ í sviðsljósinu

Á föstudaginn tók Sigríður Gísladóttir þátt í uppskeruhátíð skólaþróunarverkefna í Reykjavík fyrir hönd MÍ, Bláma og Orkubús Vestfjarða sem standa að sólarselluverkefninu. Verkefnið var eitt af fimm sem valið var til að gera glæsilegt kynningarmyndband um og fékk það afar góðar viðtökur á hátíðinni. Margir dáðust að nýsköpunarhugmyndinni, glæsilegu landslagi, fjölbreyttu skólastarfi og duglegum nemendum sem koma fram í myndbandinu.

Mennta- og barnamálaráðherra kynnti jafnframt að í haust verði aftur auglýstir styrkir til skólaþróunarverkefna. Stefnt er að því að MÍ verði meðal umsækjenda um framhaldsstyrk. Á hátíðinni voru kynnt mörg áhugaverð verkefni svo sem íþróttakennsla í leikskólum á Suðurnesjum og öflugt frístundastarf í Reykjavík. Það má vel vera að hér kvikni hugmyndir til frekari verkefna sem sækja mætti um styrki fyrir.