Sólrisukaffi MÍ

Pönnukökur með rjóma og sultu
Pönnukökur með rjóma og sultu

Sólrisukaffi Menntaskólans á Ísafirði fór fram í dag við góðar undirtektir. Hinn eiginlegi Sólrisudagur er hins vegar næsta sunnudag, þegar sólargeislar ná yfir fjallstoppana og lýsa upp Sólgötuna, að því gefnu að skýjahula setji ekki strik í reikninginn.

Mikil þátttaka var í Sólrisukaffinu sem er í umsjá nemenda skólans. Gestir gátu notið fjölbreyttra veitinga. Í boði voru meðal annars pizzasnúðar, bollakökur, skúffukökur að hinum ógleymdu vinsælu sólarpönnukökum.

Sólrisunni er borin mikil virðing í skólasamfélaginu og markar viðburðurinn upphaf að þeirri stemningu sem fylgir þessum árstíma. Nú eru nemendur farnir að undirbúa hina árlegu Sólrisuviku skólans sem verður í byrjun mars, þar sem fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir nemendur, kennara og annað starfsfólk og má búast við líflegu mannlífi og skemmtilegum uppákomum.