Sólrisuvika Menntaskólans á Ísafirði hófst í dag með skrúðgöngu nemenda og starfsfólks. Venju samkvæmt hefur menningarviti nemendafélagsins ásamt sólrisunefnd skipulagt fjölbreytta dagskrá sem í ár inniheldur m.a. sápuglímu, sundblak, íþróttakvöld og árshátíð. Skólablaðið Emmí Okkar er einnig komið út og í næstu viku verður sólrisuleikritið frumsýnt í Edinborgarhúsinu. Að þessu sinni er um að ræða hinn alveg frábæra og hræðilega harmleik um Rómeó og Júlíu í eikstjórn Birgittu Birgisdóttur. Útvarpsstöðin MÍ-flugan fm 96.00 er komin í loftið og þar geta hlustendur fengið heiðarlega innsýn inn í menningarheim unga fólksins í dag.
Á þriðjudag og miðvikudag verður óhefðbundin kennsla í skólanum því þá munu nemendur sækja ýmsar fjölbreyttar smiðjur í stað þess að mæta í hefðbundnar kennslustundir. Á hverjum degi er einnig ákveðið þema í klæðnaði og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var náttfataþema á fyrsta degi.
Við hlökkum til komandi viku og vonum að allir njóti hinnar fjölbreyttu dagskrár sem í boði verður innan skólans í vikunni.
