Stöðupróf í pólsku

Stöðupróf í pólsku verður haldið í Kvennaskólanum í Reykjavík miðvikudaginn 25. febrúar 2026 kl. 16:30. Hægt er að fá metnar allt að 20 framhaldsskólaeiningar.

Skráning fer fram á heimasíðu skólans (www.kvenno.is) fyrir 20. febrúar. Prófgjald er 20.000 kr., sem greiðist inn á tilgreindan reikning, og senda þarf kvittun í tölvupósti. Greitt prófgjald og persónuskilríki með mynd eru skilyrði fyrir próftöku.

Linkur á skráningu

https://forms.office.com/e/WiLL5UK4LU