Stöðupróf í tælensku verður haldið í Menntaskólanum á Ísafirði miðvikudaginn 8. apríl 2026 kl. 15:00.
Mest geta nemendur fengið 20 einingar metnar, 15 einingar á 1. þrepi og 5 einingar á 2. þrepi.
Skráning fer fram á heimasíðu skólans og þarf að skrá sig ekki síðar en 27. mars. Prófgjald er kr. 15.000 sem greiðist með því að leggja það inn á reikning: 0556-26-001918, kt. 490671-0139. Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram á innlegginu. Vinsamlegast sendið afrit af kvittuninni á martha@misa.is
Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt og auk þess verða próftakar að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.
Nemendur í öðrum skólum geta tekið prófið með yfirsetu í viðkomandi skóla, sjá nánar í skráningarformi.
Hér má nálgast skráningarformið: https://form.jotform.com/260552395451357 - og einnig er hægt að skanna QR kóða hér:
