Stöðupróf í úkranísku verður haldið í Menntaskólanum á Akureyri og Menntaskólanum við Sund 21. janúar 2026 kl. 15:00. Prófið er skriflegt og munnlegt.
Skráningu lýkur 16. janúar. Skráning fer fram á ma.is eða með QR-kóða.
Prófgjald er 25 þúsund. Leggist inn á Rknr. 0302-26-327, Kt. 460269-5129. Vinsamlega sendið afrit af greiðslu á ragnar@ma.is.
Próftökuréttur er háður því að prófgjald hafi verið greitt. Sýna þarf skilríki í prófi.
Prófið er samið í samræmi við aðalnámskrá framhaldsskóla í erlendum málum og með hliðsjón af evrópska tungumálarammanum.
Hægt er að óska eftir því að fá að taka prófið í öðrum framhaldsskóla ef viðkomandi skóli samþykkir það.
