Nýnemar við gamla bæinn á Arnarnesi í Dýrafirði
Nú er að hefjast þriðja árið sem MÍ er þátttakandi í átakinu Heilsueflandi framhaldsskóli. í tilefni af því að þetta skólaár verður helgað geðrækt mun embætti landlæknis standa fyrir málþingi um geðrækt í framhaldsskólum, föstudaginn 20 september. Verkefnisstjóri MÍ er Jónas L. Sigursteinsson íþróttakennari. Hann mun sækja málþingið fyrir okkar hönd en nánar má lesa um það á heimasíðu landlæknisembættisins.