Guðmundur Ari Sigurjónsson, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, og Arna Lára Jónsdóttir, varaformaður þingflokksins, heimsóttu Menntaskólann á Ísafirði í dag.
Í heimsókninni áttu þau fund með skólastjórnendum þar sem rætt var um ýmis mál tengd rekstri framhaldsskóla, stöðu menntamála og nýja ráðherraskipan á því sviði. Samtalið var fjölbreytt og sneri bæði að áskorunum og tækifærum sem blasa við skólum á landsbyggðinni.
Að fundi loknum heilsuðu Guðmundur Ari og Arna Lára upp á kennara skólans og kynntu sér starfsemina. Heimsóknin endaði á léttari nótum þegar Guðmundur Ari gat ekki staðist freistinguna að rifja upp gamla borðtennistakta og sló í leik við Gunnar Geir, nemanda skólans, sem átti ekki í vandræðum með að sigra þingflokksformanninn.
Stjórnendur vilja þakka Örnu og Guðmundi fyrir heimsóknina því það er mikilvægt að þingmenn séu vel upplýstir um starfsemi einstakra skóla og ekki síst á landsbyggðinni.
