Það er gaman að segja frá því á þessum sólríka degi, hér í logninu á Ísafirði, eiga tveir starfsmenn skólans stórafmæli. Það eru þau Þröstur Jóhannesson og Erna Sigrún Jónsdóttir. Erna er 50 ára og Þröstur er 70 ára. Þröstur hóf einmitt störf hér í menntaskólanum fyrir akkúrat tuttugu árum þegar hann var 50 ára.
Við óskum Þresti og Ernu innilega til hamingju með afmælið og óskum þeim alls hins besta í framtíðinni.