Nú í byrjun október mánaðar héldu 17 nemendur skólans til Frakklands að heimsækja franskan vinaskóla MÍ sem heitir Lycée Sainte Marie du Port og er í strandbænum Les Sables d´Olonne á vesturströnd Frakklands. Með í för voru tveir kennarar, þau Nadja Widell og Svavar Þór Guðmundsson. Nemendur franska skólans komu til Ísafjarðar í vor og nú er verið að endurgjalda þá heimsókn. Nemendaskipti sem þessi hafa verið fastur liður í skólastarfi MÍ í yfir 20 ár og ávallt mikið tilhlökkunarefni enda bæði þroskandi og lærdómsríkt að taka þátt í verkefni af þessu tagi. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og er eitt af þeim alþjóðlegu samstarfsverkefnum sem á sér hvað lengsta sögu innan skólans því fyrsti hópurinn fór til Les Sables árið 2004. Nemendur MÍ dvöldu í Sables í um vikutíma og gistu þar frönskum heimilum. Þau héldu að því loknu til París þar sem þau skoðuðu sig um í nokkra daga. Meðfylgjandi myndir voru teknar í ferðinni.



