Grétar Örn Eiríksson Kratsch hefur verið ráðinn í nýja stöðu verkefnastjóra við skólann. Var hann ráðinn úr hópi 14 umsækjenda og mun hefja störf nú í ágúst.
Grétar Örn útskrifaðist sem stúdent frá MÍ árið 2003. Hann er með menntun í grafískri miðlun, margmiðlunarfræði og skapandi greinum. Grétar Örn hefur undanfarin ár starfað sem verkefnastjóri en áður vann hann sem markaðsstjóri, hönnunarstjóri, framkvæmdastjóri og grafískur miðlari.
Við bjóðum Grétar Örn hjartanlega velkominn í MÍ-hópinn um leið og við þökkum öðrum umsækjendum fyrir þann áhuga sem þeir sýndu starfinu.