Á föstudaginn síðasta hófst verklegt nám í múraraiðn og markar það mikil tímamót hjá MÍ en þetta er í fyrsta sinn sem verklegi hluti námsins er kenndur hér á staðnum eftir að MÍ og Iðnskólinn á Ísafirði sameinuðust. Kennari námsins er Hermann Þorsteinsson múrarameistari og framhaldsskólakennari sem leiðir nemendur inn í helstu verkþætti fagsins, öryggi og vinnubrögð á verkstað.
Alls eru níu nemendur skráðir í námið. Með þessari uppbyggingu verður auðveldara fyrir áhugasama að sækja sér menntun í múraraiðn án þess að fara langt að heiman en stórkostleg vöntun er á múrurum á svæðinu, auk þess sem tengsl við atvinnulífið styrkjast. Við upphaf námsins afhenti Húsasmiðjan skólanum veglegar gjafir sem voru ýmis verkfæri sem tengjast múrvinnu. Við þökkum Húsasmiðjunni kærlega fyrir góðan stuðning.
Við óskum nemendum og Hermanni velfarnaðar og hlökkum til að fylgjast með framvindu námsins á komandi misserum.



