DANS1SK05

Danska með áherslu á sköpun

Áfangalýsing:

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur séu færir um að skilja venjulegt talað og ritað mál almenns eðlis. Dönsk menning er kynnt og áhugi á henni vakinn. Áhersla er lögð á að orðaforði og lesskilningur nemenda verði aukinn, svo og að þeir geti tjáð sig munnlega og skriflega. Nemendur eru þjálfaðir í framburði og réttritun og læra að beita algengustu málfræðireglum, og kynnast hvernig danskan nýtist á hinu norræna menningarsvæði. Nemendur fá þjálfun í að nota hjálpargögn og kennsluforrit í námi sínu. 

 

Forkröfur: Engar

 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • dönsku samfélagi, viðhorfum og gildum sem móta danska menningu.
  • hvernig kunnátta í dönsku getur nýst á norræna menningarsvæðinu.
  • geta orðað hugsanir sínar skýrt bæði í ræðu og riti.
  • helstu málnotkunarreglum og hefðum um uppsetningu og skipulagi ritaðs máls.
  • notkun margmiðlunartækni í tungumálanámi.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: 

  • skilja eðlilegt mál við mismunandi aðstæður sem og algeng orðasambönd sem einkenna það.
  • lesa fjölbreytta gerðir texta og geta beitt til þess þeim lestraraðferðum sem við eiga í hvert sinn.
  • tjá sig skýrt og án vandkvæða um almenn málefni.
  • rita einfaldan texta og beita til þess helstu meginreglum danskrar mál- og setningafræði.

 

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: 

  • skilja aðalatriði venjulegs talmáls hvort sem hann þekkir umræðuefni eða ekki, s.s. samræður og fjölmiðlaefni.
  • tileinka sér efni ritaðs texta og nýta á margvíslegan hátt.
  • átta sig á dýpri merkingu texta.
  • tjá sig á skýran og áheyrilega hátt og beita tungumálinu á viðeigandi hátt við mismunandi aðstæður.
  • takast á við og leysa ýmis mál sem geta komið upp t.d. á ferðalagi um Danmörku og haga orðum sínum í samræmi við aðstæður.
  • auka eigin meðvitund um eigin færni og námsframvindu.
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum m.a. með því að nýta sér ýmis hjálpargögn, upplýsingaveitur á veraldarvefnum og námsforrit.

  

Áfangakeðjur í tungumálum