Tölvukerfi MÍ

Markmið þeirra sem koma að tölvukerfi MÍ er að veita bæði örugga og skjóta þjónustu við nemendur. Til þess að svo megi verða hefur skólinn gert samning við Opin Kerfi hf. um viðhald og uppsetningu á tölvum skólans. Þjónustuaðili Opinna Kerfa hér á Ísafirði er Snerpa hf.

Lykilorð

Nemendur eiga þess kost að fá aðgang að tölvukerfi skólans, auk þess sem þeir hafa aðgang að Innu og Námskjá. Þessi notendanöfn og lykilorð geta þeir nálgast hjá ritara.

 

Athugið að notandanafn á Innu er á forminu MÍ123456 og ber að rita það með stórum stöfum og broddstaf.

 

Notandanafn inn á tölvur, moodle námsvefinn og í vefpóstinn eru aftur á móti á forminu mi123456 og ber að rita það með litlum stöfum og ekki með broddstaf.

Atburðir
« Febrúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Næstu atburðir

Vefumsjón