DANS2BF05

Danska - danskt mál og samfélag

Áfangalýsing:

Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur þjálfist í að skilja venjulegt talað og ritað mál um efni sem þeir þekkja sem og efni almenns eðlis. Áhersla er lögð á að orðaforði og lesskilningur nemenda verði aukinn m.a. með lestri sérhæfðra texta og texta sem þeir velja sjálfir og falla að þeirra áhugasviði. Nemendur fái þjálfun í að tjá sig munnlega, færa rök fyrir máli sínu og skiptast á skoðunum. Farið verður í undirstöðuatriði danskrar málfræði. Dönsk menning kynnt og þau gildi og viðhorf sem hana móta. Nemendur fái að kynnast hvernig danskan nýtist á hinu norræna menningarsvæði. Farið verður yfir sögu og menningu Færeyja og Grænlands, stöðu dönskunnar í þeim löndum og ríkjasamband þeirra við Danmörku. Nemendur bera ábyrgð á eigin námsframvindu, eru hvattir til sjálfstæðra vinnubragða og fái skilning á aðferðum við að tileinka sér erlend tungumál.  

 

Forkröfur: DANS1SK05 eða hæfniseinkunn B úr grunnskóla. 

 

Markmið:

 

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á: 

  • dönsku samfélagi, viðhorfum og gildum sem móta danska menningu.
  • hvernig kunnátta í dönsku getur nýst á norræna menningarsvæðinu.
  • nauðsynlegum orðaforða og orðasamböndum til að skilja inntak rit- og talmálstexta sem fjalla um efni sem nemandi þekkir til.
  • helstu málnotkunarreglum og hefðum um uppsetningu og skipulagi ritaðs máls.
  • notkun margmiðlunartækni í tungumálanámi.

 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að: 

  • lesa fjölbreytta gerðir texta og geta beitt til þess þeim lestraraðferðum sem við eiga í hvert sinn.
  • orða hugsanir sínar skýrt bæði í ræðu og riti.
  • rita texta þar sem helstu rithefðum og reglum um málbeitingu er fylgt og beita til þess helstu meginreglum danskrar mál- og setningafræði.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: 

  • skilja aðalatriði venjulegs talmáls hvort sem hann þekkir umræðuefni eða ekki, s.s. samræður og fjölmiðlaefni.
  • tjá sig á skýran og áheyrilega hátt og beita tungumálinu á viðeigandi hátt við mismunandi aðstæður.
  • takast á við og leysa ýmis mál sem geta komið upp t.d. á ferðalagi um Danmörku og haga orðum sínum í samræmi við aðstæður.
  • skrifa texta um efni frá eigin brjósti þar sem t.d. eigin reynslu og hughrifum er lýst, sem og ýmis konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við hverju sinni.
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum m.a. með því að nýta sér ýmis hjálpargögn, upplýsingaveitur á veraldarvefnum og námsforrit. 

  

Áfangakeðjur í tungumálum