EÐLI3SB05

Eðlisfræði - varmafræði, hringhreyfing, sveifluhreyfing og bylgjur

Áfangalýsing:

Í þessum áfanga er farið yfir grunnatriði í tengslum við varmafræði, hreyfingu hluta í fleti, hringhreyfingu.  Þyngdarlögmálið, sveiflu- og bylgjuhreyfingar og bylgjur í fleti. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu.

 

Forkröfur: EÐLI2AF05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • eðlisvarma, varmarýmd og fasaskiptum.
  • hreyfingu og hröðun hluta í fleti.
  • hringhreyfingu hluta.
  • þyngdarlögmálinu og áhrifum þess á hreyfingu reikistjarna.
  • einföldum sveifluhreyfingum.
  • hljóðbylgjum og Dopplerhrifum.
  • bylgjum í fleti, hljóðbylgjum og ljósi.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • vinna með tölur og vigra í eðlisfræði.
  • reikna út varmaskipti.
  • reikna hreyfingu hluta í fleti, t.d. skáköst.
  • reikna miðsóknarhröðun hluta í hringhreyfingu.
  • reikna hreyfingu reikistjarna og gervihnatta.
  • reikna bylgjulengd, tíðni og hraða bylgna.
  • reikna út Dopplerhrif hljóðbylgna.
  • beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi.
  • útbúa og framkvæma verklegar æfingar af nákvæmni og meta niðurstöður mælinga.
  • vinna skýrslur úr verklegum æfingum og setja fram niðurstöður á skýran hátt.

 Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • meta hvort niðurstöður mælinga og útreikninga séu raunhæfar.
  • draga ályktanir út frá niðurstöðum verklegra æfinga og miðla þeim til annarra.
  • tengja eðlisfræði við raunveruleg viðfangsefni og gera sér grein fyrir notagildi hennar.
  • skýra fyrir öðrum og ræða um þau eðlisfræðilegu fyrirbæri sem hann hefur kynnst.
  • beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna úr námsefninu.
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu. 

 

Áfangakeðja í raungreinum