FÉLV1IF05

Inngangur að félagsvísindum

Áfangalýsing:

Markmið áfangans er að gefa yfirlit yfir viðfangsefni félagsvísinda og þeirra fræðigreina sem falla undir þau. Í áfanganum verða tekin fyrir valin viðfangsefni úr félagsfræði, fjölmiðlafræði, sálfræði, mannfræði og stjórnmálafræði. Lögð verður áhersla á víxlverkun samfélags og einstaklinga.

 

Forkröfur: Engar

 

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • mikilvægustu félagslegu festum samfélagsins og tilgangi þeirra.
  • hlutverki menningar í þróunarsögu mannsins.
  • mikilvægi fjölmiðla og áhrifa þeirra.
  • helstu þáttum íslenska stjórnkerfisins.
  • því hvernig hegðun lífvera mótast með lögmálum atferlisstefnu.
  • viðfangsefnum félagsvísinda.

Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:

  • greina hlutverk fjölskyldunnar, skólans og annarra helstu stofnana íslensks samfélags.
  • greina helstu innviði íslenskrar stjórnsýslu, störf alþingis og sveitarstjórna.
  • flytja munnlega kynningu og skrifa ritgerð um valið viðfangsefni áfangans.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • skoða samfélag og menningu út frá þeim sjónarhornum félagsvísinda sem fjallað er um í áfanganum.
  • geta sett sig í spor annarra og nýta til þess hugtök úr félagsvísindum.
  • afla sér upplýsinga í félagsvísindum, meta þær og hagnýta.
  • greina valið fjölmiðlaefni með tilliti til markhópa og málefna.
  • vera betur meðvitaður um ýmsa samfélagslega þætti sem hafa áhrif á velferð fólks.
  • meta málefni líðandi stundar á gagnrýninn hátt.

 

Áfangakeðja í félagsgreinum