FRAN1AU05

Franska - lokaáfangi

Áfangalýsing:

Áfanginn á að gefa góða undirstöðu til notkunar og þekkingar á frönsku sem tungumáli og frönskumælandi menningu, samfélagi og sögu. Námsefnið byggir á áföngunum FRAN1AG05 og FRAN1AF05. Áfanginn á áfram að örva forvitni nemandans á tungumálum og menningu. Áfanginn á að gefa nemendum möguleika á að þróa fjöltyngi þar sem kunnátta í ólíkum tungumálum starfa saman og styðja hvert annað. Nemendur eru þjálfaðir í lesskilningi, tali, hlustun og ritun.  

Mikill áhersla er lögð á að nemendur þjálfist áfram í að nota frönsku og er þeim þætti sinnt bæði með hlustun og talæfingum. Samhliða vinnu með kennslubæklinga og annað skriflegt efni hlusta nemendur reglulega á samtíma útvarpsfréttir á einfaldri frönsku. 

 

Forkröfur: FRAN1AF05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum þrepsins.
  • helsta grundvelli fransks málkerfis: tónfalli, framburði og málfræði.
  • einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli.
  • almennum sögnum í nútíð, þátíð og framtí.
  • ýmsum sviðum franska tungumálsins, samfélagi og sögu.

Nemandi skal hafa öðlast leikni i að: 

  • fylgjast með munnlegum og skriflegum frásögnum um nokkuð þekkt efni þar sem tungumálið er skýrt .
  • tjá sig á frönsku með góðum framburði.
  • setja mælt og ritað mál í samhengi við eigin þekkingu og reynslu.
  • nota gagnrýna hugsun.
  • nota sér endurgjöf.
  • setja franskt samfélag í dag í samhengi við söguna.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • þróa með sér sjálfstæð vinnubrögð, jákvæðni og trú á eigin getu í frönsku.
  • taka þátt og fylgjast með í einföldum samræðum, svara og spyrja um þekkt efni.
  • tjá sig um frönskumælandi menningu, samfélag og sögu í tengslum og samanburði við umhverfi sitt  og  daglegt líf. 

  

Áfangakeðjur í tungumálum