ÍSLE3BB05

Áfangalýsing:

Í áfanganum kynnast nemendur sögu og þróun íslenskra barna- og unglingabókmennta og fræðast um mál og menningarheim barna- og unglingabóka. Ennfremur um þróun barna- og unglingabókmennta frá upphafi ritunar þeirra til dagsins í dag sem og mismunandi birtingarform þeirra. Nemendur fá þjálfun í lestri fræðigreina um efnið og gera grein fyrir lestrarreynslu sinni munnlega og skriflega.

 

Forkröfur: ÍSLE2MG05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:  

  • helstu bókmenntafræðihugtökum sem tengjast barna - og unglingabókum.
  • flokkun barna- og unglingabóka og geri sér grein fyrir ólíku efni þeirra, eðli og tilgangi.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:  

  • skrifa heimildaritgerðir og styttri texta um barnaefni.
  • kynna verkefni sín munnlega og skriflega.
  • átta sig á hvað einkennir góðar barna- og unglingabækur.
  • nýta sér fræðileg vinnubrögð við úrvinnslu efnis.

 Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • velja á gagnrýninn hátt lesefni handa börnum og unglingum.
  • meta með gagnrýnum huga barnaefni af ýmsu tagi.
  • semja efni sem ætlað er börnum.

 

Áfangakeðja í íslensku