LÍFF3ME05

Mannerfðafræði

Áfangalýsing:

Í áfanganum verður farið yfir byggingu og starfsemi erfðaefnisins, Central Dogma og táknmál erfðanna. Grunnaðferðir erfðatækninnar verða kynntar. Skoðaðar verða helstu gerðir stökkbreytinga frá punktbreytingum til litningabreytinga. Eingena og fjölgena erfðir útskýrðar og ættartré teiknuð. Kynntar verða fylgni- og tengslagreiningaraðferðir við leit að meingenum. Þekktum meingenum með íslenskan uppruna og stökkbreytingar þeirra verður lýst. Yfirlit verður yfir rannsóknir á erfðaefni manna á Íslandi. Kynntir verða helstu gagnagrunnar með erfðaefnisupplýsingar fyrir manninn og aðrar lífverur. Samantekt er sett fram á mögulegri nýtingu nútíma erfðaefnisþekkingar. Kynnt verða siðferðileg viðmið mannerfðafræðinnar.

 

Forkröfur: LÍFF3EF05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:  

  • sérkennum líffræðinnar sem fræðigreinar og tengslum hennar við aðrar greinar.
  • helstu grunnkenningum líffræðinnar.
  • flokkum lífrænna efna og starfsemi þeirra.
  • byggingu og starfsemi ýmissa frumugerða.
  • byggingu og starfsemi vefja í dýrum og plöntum.
  • skipulag og starfsemi helstu líffæra og líffærakerfa mannsins.
  • hvað gerist við næringarnám frumbjarga og ófrumbjarga lífvera.
  • starfsemi meltingar, öndunar, efnaflutnings, úrgangslosun, ónæmissvörun, boðflutningi, skipulagi og virkni. stjórnstöðva í heila, hreyfingu, stjórn efnaskipta, skynjun, æxlun og fósturþroska spendýra.
  • skipulagi erfðaefnis, hvað felst í erfðum ásamt dæmum um arfgenga eiginleika.

Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:  

  • gera greinarmun á helstu undirgreinum líffræðinnar.
  • skoða lífverur í náttúrunni, í smásjá og á vefmiðlum.
  • lesa líffræðilegar upplýsingar í máli og myndum.
  • útskýra flokka lífrænna efna og helstu hlutverk þeirra.
  • greina mismunandi hluta fruma og starfsemi þeirra.
  • greina vefi dýra og plantna og helstu einkenni þeirra.
  • þekkja öll helstu líffæri og hvernig þau vinna saman í líffærakerfum.
  • útskýra mun á næringarnámi frumbjarga og ófrumbjarga lífvera.
  • útskýra feril og virkni meltingar, öndunar, efnaflutnings, úrgangslosunar, ónæmissvörunar, boðflutnings, virkni stjórnstöðva í heila, hreyfinga, stjórnunar efnaskipta, skynjunar, æxlunar og fósturþroska spendýra.
  • þekkja algengustu erfðamunstur og geta útskýrt þau.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • auka skilning sinn og annarra á fyrirbærum náttúruvísinda.
  • leggja mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum í samfélaginu á gagnrýninn hátt.
  • taka ábyrgð á eigin lífi, heilsu og vellíðan með þekkingu sinni á líf- og lífeðlisfræðilegum þáttum.
  • tengja grunnþekkingu í líf- og lífeðlisfræði við samfélagsleg gildi og umhverfi til sjálfbærni.
  • afla sér frekari þekkingar á líffræðilegum viðfangsefnum.

 

Áfangakeðja í raungreinum