MYNL2SK05

Myndlist - Þrívíddarformfræði

Áfangalýsing:

Í áfanganum er unnið með hugtökin rými, tvívídd, þrívídd, ljós, skuggi og myndbygging auk annarra hugtaka sem tengjast skúlptúrum og þrívíðum verkum. Leitast verður við að kynna nemandanum fjölbreytta þrívíða vinnu og að hann skoði hvernig koma má tvívíðum skissum í þrívítt form. Unnið verður með ýmis efni s.s., pappír, leir, gifs, vír, garn, ullarflóka, léreft o.fl. Nemandinn heldur utan um skissur, hugmyndir, prufur og þróunarvinnu sína og setur fram með skipulögðum hætti. Auk þessa vinna nemendur rannsóknarverkefni í hópum sem þeir kynna fyrir samnemendum sínum.

 

Forkröfur: SJÓN1LF05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtökum um þrívídd, skúlptúr, lágmynd, myndbygging og rými.     
  • eigin vinnuferli frá hugmynd að fullunnu verki.
  • grunnaðferðum afsteyputækni.
  • þrívíðri myndlist í nærumhverfinu og þekki höfunda hennar.
  • ýmsum stefnum og stílbrigðum í þrívíðri myndlist.
  • helstu efnum og aðferðum í gerð þrívíðra myndverka.

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • móta verk í þrívídd með mismunandi aðferðum.
  • vinna þrívítt útfrá tvívíðum skissum.
  • beita mismunandi aðferðum og tækni í tilraunum og skissugerð.
  • meðhöndla efni og verkfæri til þrívíðrar myndsköpunar.
  • þróa þrívíð verk út frá eigin hugmyndum og tilraunum.
  • beita aðferðum sem nýtast í hugmyndavinnu, framsetningu verkefna og skipulagningu á verkferli og útfærslu verka sinna.
  • nota skissubók og að skrá hugmyndir.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta hæfni sína í listræna vinnu og sköpun.
  • þroska færni sína og skilning á list og/ eða hönnun.
  • geta opnað augun fyrir hinum hversdagslegu hlutum í umhverfinu og nýtt þá í listsköpun.
  • ræða um og rökstyðja þær hugmyndir sem hann túlkar í verkum sínum.
  • velja efni við hæfi til úrvinnslu þrívíðra verka.
  • sýna áræðni og frumkvæði við útfærslu í þrívíðri vinnu.
  • nýta sér sköpun, ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við þróun hugmynda, skissuvinnu og úrvinnslu.
  • fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt og gera grein fyrir forsendum.
  • greina áherslur og stílbrigði merkingar í rýmis- og efnisnotkun þekktra listamanna.

Áfangakeðjur í lista- og nýsköpunargreinum