MYNL3BM05

Anatómía

Áfangalýsing:

Í vestrænni menningu hefur mannslíkaminn verið eitt mikilvægasta viðfangsefni listrænnar tjáningar. Í áfanganum er beina- og vöðvabygging mannslíkamans teiknuð. Jafnhliða er fyrirsæta teiknuð til að sannreyna anatómískar rannsóknir svo nemendur öðlist hlutlæga þekkingu og reynslu til að túlka og skilgreina hugmyndir sínar af innsæi og listrænum metnaði. Nemendur læra um gildi ástundunar og þjálfunar í teikningu

 

Forkröfur: MYNL2FF05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:  

  • beina- og vöðvabyggingu mannslíkamans.
  • stærðarhlutföllum mannslíkamans.
  • myndbyggingu og rýmishugtaki.
  • hugtökum eins og lína, flötur, fjarvídd, yfirskurður og spennipunktur, jákvætt og neikvætt form.
  • að geta skipulagt verk sín út frá tíma, stærð og efni.

Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:  

  • að túlka og skilgreina fyrirmynd og hugmyndir af innsæi og ljá þeim listrænt gildi.
  • að kunna skil á eðli frumdraga og ítarlegra teikninga.
  • að beita teikningu til rannsóknar á viðfangsefnum myndlistar.
  • að fylgja eigin listrænu fyrirætlunum án tæknilegra annmarka.
  • að geta greint aðalatriði frá aukaatriðum í teikningu.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • þjálfa upp hæfni til að rannsaka viðfangsefni myndlistar með akademískum aðferðarfræðum.
  • túlka hugmyndir sínar af innsæi og listrænum metnaði.
  • takast á við kröfur um listrænt sjálfstæði og akademísk vinnubrögð á háskólastigi.
  • hagnýta sér þekkingu sína og skapandi hugsun til áframhaldandi náms á öðrum þekkingarsviðum.
  • beita breytilegri tækni í verkum sínum.

 

Áfangakeðjur í lista- og nýsköpunargreinum