NÁTV1IN05

Inngangur að náttúruvísindum

Áfangalýsing:

Í áfanganum verður fjallað um náttúruvísindi í víðu samhengi, efnafræði, líffræði, jarðfræði og eðlisfræði og hvernig þessar greinar tengjast. Í áfanganum verður fjallað um vísindalega aðferðafræði og grunnhugtök hennar: Tilraun/könnun, breyta, tilgáta, kenning og lögmál. Nemendur eru þjálfaðir í meðferð á tölulegum gögnum, vinnu með mismunandi mælieiningar ásamt réttri notkun heimilda samkvæmt APA kerfinu í verkefnavinnu áfangans. Efnislega er lögð áhersla á orkuhugtakið, orkuauðlindir og mögulega nýtingu endurnýjanlegra orkulinda í heimabyggð. Aðrir mikilvægir námsþættir varða þekkingu á vistkerfum jarðar, hringrás efna og sjálfbærni til hagnýtingar í nútíma samfélagi. 

 

Forkröfur: Engar

 

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á: 

  • grundvallar flokkun vísindagreina og helstu greinum náttúruvísinda.
  • mismunandi tegundum heimilda, t.d. muninum á frumheimildum og eftirheimildum.
  • megin rannsóknaraðferðum í náttúruvísindum, félagsvísindum og hugvísindum, t.d. mun á megindlegum og eigindlegum aðferðum.
  • Framsetningu þekkingar í formi skýrslu.
  • SI – einingakerfinu.
  • uppbyggingu efna og fyrirbæra, allt frá frumefnum til vetrarbrauta.
  • ólífrænum og lífrænum efnum.
  • helstu orkulindum jarðarbúa (jarðefnaorku, vatnsorku, vindorku, sólarorku, jarðvarma og kjarnorku).
  • innri og ytri öflum jarðar og helstu áhrif þeirra.
  • orkunotkun jarðarbúa og tengsl hennar í víðu samhengi t.d. við kolefnishlutlausan bruna lífrænna efna, gróðurhúsaáhrif, orkunotkun við fæðuframleiðslu og matvælaöryggi.
  • vatni og mikilvægi þess innan og utan lífvera.
  • einkennum helstu fylkinga lífvera, aðal vistkerfum jarðar og dæmi um samsetningu þeirra.
  • sjálfbærni.

Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:  

  • ræða og kynna efni áfangans.
  • tengja mismunandi greinar náttúruvísinda.
  • nota viðeigandi heimildir á heiðvirðan hátt og geta þeirra eftir viðurkenndum kerfum.
  • útskýra byggingu efna (frá öreindum til efnasambanda) og mun á helstu flokkum lífrænna efna.
  • útskýra uppruna orku á jörðinni.
  • útskýra mikilvægi þess að auka nýtingu matvæla.
  • lýsa hringrás orku og kolefnis á jörðinni.
  • útskýra áhrif vatns og saltlausna á frumur líkamans.
  • lýsa einkennum lífvera og greina fylkingu þeirra.
  • greina helstu lífverur og umhverfisþætti valinna vistkerfa.

Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: 

  • taka þátt í umræðu um efni áfangans á ábyrgan og sjálfstæðan hátt.
  • geta tekið rökstudda og gagnrýna afstöðu til málefna sem tengjast endurnýjanlegum orkugjöfum.
  • geta tekið rökstudda og gagnrýna afstöðu til málefna sem tengjast aðgengi að hreinu vatni fyrir allar lífverur.
  • átta sig á mikilvægi þess að hafa nokkra yfirsýn yfir megin viðföng helstu raungreina til skilnings á ýmsum umhverfis- og heilsufarslegum álitamálum.
  • draga ályktanir af rannsóknarniðurstöðum og rökstyðja þær út frá viðurkenndum heimildum.
  • stuðla að sjálfbærni í samfélaginu, í starfi og í leik.
  • afla sér víðtækari þekkingar á sviði náttúruvísinda.

 

Áfangakeðja í raungreinum