NÝSK1FA05

Nýsköpun og Fablab

Áfangalýsing:

Farið er í gegnum ferlið frá hugmynd að áþreifanlegri frumgerð. Kennt er á tvívíð og þrívíð teikniforrit sem henta fyrir frumgerðasmíð og framleiðslu. Verkefni eru síðan framkvæmd í tölvustýrðum vélum og fleiri möguleikar smiðjunnar kynntir.

 

Forköfur: Engar

 

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:  

  • Fab Lab smiðju.
  • stafrænni framleiðslutækni.
  • tvívíddar og þrívíddarhönnun, teikningum.
  • Hugbúnaði fyrir tvívíða og þrívíða hönnun.
  • skrásetningu með heimasíðu. 

Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:  

  • nota teikniforrit.
  • útbúa rafræn skjöl fyrir vélar í Fab Lab.
  • nota laserskurðartæki.
  • nota þrívíddarprentara.
  • nota fræsivél.

 Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:  

  • geta komið hugmynd sinni á það form að mögulegt sé að framleiða hana: gera teikningar og ákvarða efnisval og framleiðsluaðferð.
  • greina orsakir galla sem fram koma í framkvæmd og mæla fyrir um aðgerðir til úrbóta.
  • geti unnið og framleitt verkefni í laserskera, tölvustýrðum fræs og þrívíddarprentara.