SAGA3MH05

Menningarsaga

Áfangalýsing:

Í áfanganum verður áhersla lögð á tengsl menningar og samfélagsgerða. Skoðuð verða forn menningarsamfélögum, áhrif kristni og gyðingdóms á evrópska menningu í fortíð og nútíð og sjónum beint að þjóðfélagsbreytingum sem endurspeglast í menningu og listum. Nokkur tímabil og menningarsvæði verða skoðuð sérstaklega og þau valin í samráði við nemendur.

Dæmi um tímaskeið eru forn-egypsk menning, rómversk menning, miðaldir í Evrópu, endurreisnin í Evrópu, barokktíminn í Evrópu, 19.öldin, stríðsáramenning, rokktímabilið, blómatíminn og japönsk menning.

 

Forkröfur: SAGA2MÍ05

 

Markmið:

Nemandi skal hafa aflað sér almennrar þekkingar og skilnings á:

  • aðgreiningu menningarhugtaksins í hlutlæga og huglæga menningu.
  • aðgreiningu í leifar og frásagnir.
  • helstu forsendum borgarmenningar.
  • ólíkum sviðum menningar og tengsl þeirra við upphaf sitt.
  • framlagi ólíkra menningarheilda til nútímamenningar.

Nemandi skal hafa öðlast leikni i að:

  • leggja gagnrýnið mat á menningarhugtakið hvað varðar svokallaða lág- og hámenningu.
  • leita heimilda varðandi ólíkar menningarheildir.
  • meta fjarlæg og nálæg samfélög með menningarlegum samanburði.
  • afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi.
  • meta menningarframlag ólíkra menningarsvæða til skilnings á nútímasamfélagi.
  • nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli.
  • miðla skýrt og skilmerkilega fræðilegu efni í ræðu og riti.

 Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • bera saman ólíkar menningarheildir.
  • yfirfæra þekkingu sína á einu sviði yfir á annað.
  • meta menningarframlag ólíkra menningarsvæða á hlutlægan hátt.
  • geta ályktað út frá einu sviði menningar yfir á annað án þess að fá bein fyrirmæli um hvernig það skuli gert.

 

 

Áfangakeðja í sögu