DAN 102
Undanfari: Enginn
Markmið
Að nemendur:
- geti áttað sig á megininntaki texta og lesið sér til gagns
- geti leitað eftir tilteknum upplýsinum í uppsláttarritum eða í rafrænum texta og notað leitarvefi til að afla sér upplýsinga á dönsku
- hafi lesið 2 hraðlestrarbækur af venjulegri lengd
- geti nýtt sér hagnýtar upplýsingar sem heyrast við ákveðnar aðstæður
- skilji atburðarás í frásögnum sem tengjast orðaforða efnisflokkanna
- hafi tilfinningu fyrir framburði allra hljóða, áherslum og hrynjandi málsins
- geti tjáð sig með orðræðu þar sem eru bæði aðal- og aukasetningar
- geti skipst á upplýsingum við aðra á dönsku
- geti notað grunnorðaforða, sem unnið hefur verið með í efnisflokkunum, á eigin forsendum í nýju samhengi
- geti skrifað viðstöðulaust u.þ.b. 30 línur á 10 mínútum um efni sem búið er að vinna með
- geti í flokki nafnorða beitt: hljóðvarpi, brottfalli, einföldun, tvöföldun, eignarfalli
- geti í flokki sagnorða beitt: hjálparsögnum, öllum kennimyndum allra algengustu sagna
- geti beitt óreglulegum endingum lýsingarorða
Áfangalýsing
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur séu færir um að skilja allt venjulegt talað og ritað mál almenns eðlis. Dönsk menning er kynnt og áhugi á henni vakinn. Áhersla er lögð á að orðaforði og lesskilningur nemenda verði aukinn, svo og að þeir geti tjáð sig af lipurð munnlega og skriflega. Nemendur eru þjálfaðir í framburði og réttritun og læra að beita algengustu málfræðireglum. Nemendur fá þjálfun í að nota hjálpargögn og kennsluforrit í námi sínu.
